Ályktanir Tóbaksvarnaþings Læknafélags Íslands

30.09 2011

Ályktanir Tóbaksvarnaþings Læknafélags Íslands

Ályktun nr. 1

Tóbaksvarnaþing Læknafélags Íslands 30.09.2011 lýsir yfir eindregnum stuðningi við þingsályktunartillögu um aðgerðaáætlun um tóbaksvarnir og fagnar framsýni þeirra þingmanna sem það mál flytja. Tóbaksvarnaþing ítrekar nauðsyn þess að tóbaksvarnir á Íslandi verði auknar verulega og hvetur til þess að aðferðir sem draga úr nýliðun tóbaksneytenda meðal barna og unglinga verði settar í algeran forgang af stjórnvöldum.


Ályktun nr. 2

Tóbaksvarnarþing Læknafélags Íslands 30.09.2011 fagnar vinnu við stefnumótun í tóbaksvörnum sem velferðarráðherra hefur boðað og minnir á aðgerðaráætlun, sem Tóbaksvarnarþing ársins 2009 samþykkti. Þar er bent á hvaða stjórnvaldsaðgerðir eru nauðsynlegar til að draga úr tóbaksneyslu barna og unglinga á Íslandi og hindra að þau ánetjist tóbaki. 







Leita