Magnús E. Kolbeinsson læknir hefur krafist þess að mál vegna áminningar á hendur honum verði endurupptekið af siðanefnd LÍ . Siðanefnd LÍ féllst á að endurupptaka málið. Í dag, 26. september kvað siðanefnd LÍ upp úrskurð. Úrskurðarorð eru:
Úrskurður Siðanefndar Læknafélags Íslands frá 9. júní sl. þar sem Magnús Eric Kolbeinsson læknir var áminntur fyrir brot á 13. og 22. gr. siðareglna lækna er felldur úr gildi. Áminning á hendur Magnúsi Kolbeinssyni er felld niður.
Í rökstuðningi siðanefndar fyrir niðurstöðunni kemur fram að nefndin telur að við meðferð málsins var þess ekki gætt að gefa Magnúsi kost á að andmæla, gera athugasemdir og bera af sér sakir vegna nánar tilgreindra atriða. Nefndin telur það vera slíkan megingalla á meðferð málsins fyrir siðanefndinni að óhjákvæmilegt sé að fella úrskurðinn úr gildi hvað þennan þátt varðar og fella áminningu nefndarinnar niður. Úrskurðurinn í heild verður birtur í október-tölublaði Læknablaðsins.