Öldungadeild LÍ hefur undanfarin ár skipulagt ferðir til útlanda fyrir sína félagsmenn. Í vor var ferðinni heitið til Austur-Þýskalands og þar skoðaðar leyndar perlur. Fararstjóri var Kristín Jóhannsdóttir.
Lagt var af stað til Berlinar 31. maí og þar gist fyrstu 5 næturnar.
Hópurinn skoðaði sig um m.a. á Potsdamer Platz, Europa Center, siglt var á ánni Spree og litið í söfn. Farið var í dagsferð á söguslóðir Friðriks mikla til Potsdam og skoðuð Sanssouci-höllin og Cecilienhof-höllin þar sem Potsdam-ráðsefnan fræga var haldin eftir seinni heimstyrjöld.
Frá Berlín var síðan haldið til Lübbenau í Spreewald, siglt á gondólum um síki og áð við Lehde.
Í dagslok var komið til Leipzig, þar sem gist var næstu 4 nætur. Fyrsta daginn þar var skoðunarferð um borgina. Litið á Volkerschlactdenkmal sem er 90 m hár minnivarði um sigur yfir her Napóleons árið 1813. Hann var reistur árið 1913.
Tómasarkirkjan var skoðuð en þar var Johann Sebastian Bach lengst af organisti.
Hús Goethes skartaði sínu fegursta í nágrenninu.
Næsta dag var haldið til bæjarins Pirna við Saxelfi og siglt með hjólaskipi í 2 tíma að kastalanum Köningstein.
Að lokum var farið til Dresden. Miðborgin hefur verið endurbyggð í sinni upprunalegu mynd, en hún var að miklu leyti lögð í rúst á lokadögum seinni heimsstyrjaldarinnar. Mjög fögur borg með góðum söfnum.
Í lok ferðar var ekið til Schönefeld flugvallar við Berlín og gist þar síðustu nóttina.
Ferðin sem var á vegum Bændaferða tókst í alla staði mjög vel og það var ánægður og glaður hópur sem lenti í Keflavík þann 9. júní.
Hörður Þorleifsson
Meðfylgjandi myndir tók Páll Ásmundsson
Efst: Hópurinn fyrir framan Tómasarkirkju
Í miðju: Á gondól í Lübbenau
Neðst: Sigurður Þorvaldsson formaður Öldungadeildar LÍ og Jóna Þorleifsdóttir fyrir framan hús Goethes