Erlend samskipti LÍ

25.08 2011

Erlend samskipti LÍ

Læknafélag Íslands sendi norska læknafélaginu samúðarkveðjur vegna hryðjuverkanna í Osló og Útey. Fyrir stuttu barst félaginu þetta bréf þar sem formaður norska læknafélagsins þakkar sýndan samhug.

 

Eins og fram kemur í lögum LÍ er tilgangur félagsins meðal annars að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi lækna að sameiginlegum hagsmunamálum. Verulegur samdráttur hefur verið undanfarin ár í þátttöku félagsins í formlegu fjölþjóðastarfi vegna þess hve dýr þessi samskifti eru. Læknafélagið vinnur heilmikið samnorrænt félagsstarf, bæði sem tengist vinnu okkar hjá fastanefnd evrópkra lækna í Brussel (Commite CPME) og á vettvangi alþjóðasamtaka lækna (WMA).

Heilmikil samvinna er einnig milli stóru nefnda norrænu læknafélaganna, samninganefnda sjúkrahús- og heilsugæslulækna, læknablaða Norðurlandanna og siðfræðiráða svo eitthvað sé nefnt. LÍ hefur ekki ýkja miklu starfsliði á að skipa miðað við til dæmis systurfélög okkar sem stæra sig af tugum manna á deildarskiptum skrifstofum sem gegnvinna evrópsk og alþjóðleg álitamál í hendur formanna sinna. En vegna náinnar samvinnu norrænu félaganna verður verkaskipting milli þeirra innbyrðis sem nýtist í stóra samhenginu. LÍ hefur notið ósérhlífinna starfskrafta fastafulltrúa okkar annarsvegar í Brussel, þar sem Katrín Fjeldsted heimilislæknir, hefur setið í stjórn í tæpan áratug og hins vegar hjá alþjóðasamtökunum þar sem fastafulltrúi okkar til fjölmargra ára og fyrrrum forseti samtakanna Jón Snædal öldrunarlæknir, situr nú í stjórn. Fyrir nokkrum árum áttum við sendinefndir hjá evrópska heimilislæknafélaginu og sérfræðingafélaginu auk þess að taka þátt í starfi almennra lækna.

 

Til viðbótar þessum fulltrúum okkar mætir formaður LÍ á flesta fundi beggja félaga og er þar með sendinefnd landsins fullskipuð. Formaður er fulltrúi LÍ á norrænum fundum sem eru tveir árlega og annar beint á undan fastafundi í Brussel.  Fimmta hvert ár koma formenn norrænu félaganna til Íslands.

 

 





Leita