Á formannafundi LÍ sem haldinn var í vor gerði Þorsteinn Jóhannesson formaður Læknafélags Vestfjarða grein fyrir stöðu mála þar:
Á Vestfjörðum er eitt sjúkrahús, á Ísafirði. Á Patreksfirði er hjúkrunardeild. Núverandi sjúkrahús var tekið í notkun árið 1987. Sjúkrahúsið þjónar um 5.500 íbúum. Þorsteinn benti á sérstöðu Vestfjarða varðandi heilbrigðisþjónustu: Það eru 440 km í næsta sjúkrahús, sem telst vera í Reykjavík. Á síðasta ári var ófært með flugi frá Ísafirði í 50 daga, í 6 daga var landleiðin algjörlega ófær, í 10 daga var ekkert vit í því að fara landleiðina en hún taldist ekki lokuð. Einu sinni í viku er engin vegþjónusta og í því felst mikið óöryggi.
Markmið sjúkrahússins á Ísafirði er að sinna allri bráðaþjónustu, að veita alla almenna sjúkrahúsþjónustu, að frumgreina og sinna öllu sem þeir ráða við. Þorsteinn sagði tengsl við LSH vera mjög góð. Þannig sér sjúkrahúsið um ýmsa eftirmeðferð t.d. krabbameinssjúklinga. Þá er sjúkrahúsið með góða endurhæfingardeild. Reksturinn kostar 670 milljónir kr. á ári. Sjúkrarúm eru 19, 15 á lyf- og skurðdeildum og 4 á fæðingadeild. Einnig er rekin öldrunardeild með 19 rúmum.
Það eru 2 læknar sem starfa á sjúkrahúsinu í einu stöðugildi og verktakastarfi. Á sjúkrahúsinu starfa 86 starfsmenn í 60 stöðugildum. Framleiðni ársins 2010 var: Innlagnir 669, göngudeildarkomur 1643, slysadeildarkomur 1010, skurðaðgerðir 308, speglanir 213, áreynslurit 55, fæðingar 54, CT 270 og ómskoðanir 340. Hjúkrunarfræðingur sér um allar svæfingar í þeim aðgerðum sem gerðar eru. Það gengur illa að fá afleysingu fyrir læknana, enda eru þeir á vakt 365 daga ársins. Fram kom hjá Þorsteini að heilsugæslulækna vantar ekki á Vestfjörðum og hann telur ástæðuna vera þá að þeir hafa mikilvægt bakland í starfsemi sjúkrahússins.