Læknafélag Íslands vill að allra leiða verði leitað til að koma í veg fyrir óeðlilegar lyfjaávísanir og vonar að yfirstandandi umræða verði hvatning til þess.
Læknafélag Íslands ítrekar áskorun sína til heilbrigðisyfirvalda um að koma á samtengdri sjúkraská á landsvísu. Þannig fá læknar heildaryfirsýn yfir meðferð sjúklinga og lyf sem ávísað er til þeirra.
Jafnframt skorar félagið á landlækni að sjá til þess að upplýsingar úr fyrirliggjandi lyfjagagnagrunni verði aðgengilegar öllum læknum.
Læknafélagið lýsir yfir vilja sínum til samstarfs við landlækni og aðra fagaðila til að koma á nauðsynlegum úrbótum.