Læknafélagið stóð fyrir skemmtilegu örnámskeiði þann 11.maí sl. Námskeiðið bar heitið "Leading at the speed of trust" og var opið öllum félagsmönnum. 23 læknar mættu í hús Læknafélagsins og höfðu gagn og gaman af.
Í umróti undafarinna mánaða hefur traust nánast gufað upp í þjóðfélaginu á Íslandi. Traust til stjórnvalda, stofnanna, ráðamanna, fyrirtækja og einstaklinga hefur rýrnað hratt. Nauðsynlegt er fyrir leiðtoga í þessari stöðu að byggja hratt og markvisst aftur upp traust helstu hagsmunaaðila.
„Leading at the Speed of Trust“ er heildrænt kerfi sem hjálpar einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum að ná hámarks árangri í því að byggja upp traust hjá einstaklingum, hópum, viðskiptavinum og í þjóðfélaginu öllu. Byggt er á metsölubók Stephen M. R. Covey „The Speed of Trust“.
Leiðbeinandi námskeiðsins var Kristinn Tryggvi Gunnarsson stjórnunarráðgjafi og partner hjá Expectus, stjórnendaþjálfari við Opna háskólann og aðjúnkt við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.
