Sjá frétt á RUV
Stjórn Félags almennra lækna skorar á félagsmenn að hætta að vinna yfirvinnu sem þeir ekki fái greitt fyrir. Læknaskorturinn hér á landi sé að miklu leyti falinn sökum þessa. Ógreidd vinna læknana nemi tugum milljóna á ári. Læknarnir sýni streitueinkenni og ástandið sé óviðunandi.
Læknum á Íslandi hefur fækkað talsvert að undanförnu. Frá því að kreppan skall á hafa þeir læknar sem hafa sérmenntað sig í útlöndum ekki snúið heim og nýliðun því ekki verið sem skyldi. Þeir sem eftir eru vinna lengur en þeim ber án þess að fá greitt fyrir þá yfirvinnu.
Eyjólfur Þorkelsson, formaður Félags almennra lækna segir félagið hafa tölur sem sýna að á sex vikum í byrjun þessa árs hafi læknar á spítalanum unnið yfir þúsund yfirvinnutíma ólaunað. Á ári sé því verið að gefa spítalanum á milli 30 og 40 milljónir, sé miðað við þessar sex vikur.
Þetta skapi álag, ergelsi og þeytu meðal almennra lækna. Nýleg könnun sýnir að mikill meirihluti þeirra er með andleg og líkamleg álagseinkenni.
Eyjólfur segir að verkefnunum fækki ekkert þannig að fólk verði einfaldlega að vinna hraðar og lengur. Hann segir stjórnendur vita af vandanum og að læknar hafi fengið þau svör að allri ólaunaðri yfirvinnu yrði tekið fegins hendi.
frettir@ruv.is
Björn Zoega svarar ofangreindri frétt á RUV
Læknar fá greitt fyrir alla yfirvinnu sem þeir sinna að því gefnu að þeir hafi fengið samþykki yfirmanna sinna fyrir vinnunni, segir Björn Zoega, forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss. Eyjólfur Þorkelsson, formaður Félags almennra lækna, sagði í fréttum í gær að félagsmenn sínir hefðu flestir unnið verulega yfirvinnu án þess að fá greitt fyrir hana.
Félagið hefur hvatt lækna til að vinna ekki verk í yfirvinnu nema þeir séu þess fullvissir að fá greitt fyrir hana. Segir hann félagsmenn sína verða af tugmilljónum króna á ári vegna þessa.
Málið horfir hins vegar öðruvísi við Birni Zoega, forstjóra Landspítala. Hann segir að læknar fái greidda fyrir yfirvinnu sem unnin er með leyfi eða að beiðni yfirmanna sinna. Hann bendir á að á spítalanum hafi verið yfirvinnubann á allar stéttir frá því í september 2009. Hafi læknar ekki fengið greitt fyrir yfirvinnu sé það vegna misskilnings eða vegna þess að þeir hafi ekki fengið samþykki fyrir þeirri yfirvinnu.
Björn segir að erfiðlega hafi gengið að fullmanna læknastöður hjá Landspítala. Þó vanti ekki mikið upp á það að hafi tekist. Hins vegar geri erfitt árferði stjórnendum sjúkrahússins það ekki léttara að manna stöður - sérstaklega þegar mönnum bjóðast hærri laun erlendis. Hann treystir sér ekki til að spá fyrir um hvort væntanlegir nýir samningar lækna breyti einhverju þar um.
frettir@ruv.is