Ógreidd yfirvinna

22.02 2011

Ógreidd yfirvinna

Margir læknar sinna aðkallandi störfum eftir að skipulagðri vinnnu lýkur án þess að fá greitt fyrir það. Stjórn LÍ ræddi þessa stöðu á síðasta stjórnarfundi.  Ljóst er að þetta er töluvert algengt á LSH og því mikilvægt að fá þessu breytt.  Samstarfsnefnd LSH og LÍ mun hittast á föstudaginn kemur og ræða þessi mál. 

Sama staða var uppi hjá hjúkrunarfræðingum á LSH ekki fyrir svo löngu en þeir náðu samkomulagi við spítalann um að ef stefndi í yfirvinnu sökum álags ætti að sækja um hana fyrirfram hjá deildarhjúkrunarfræðingi.  Þetta skipulag virðist ganga ágætlega í dag.

Ekki er við öðru að búast en yfirstjórn LSH leiðrétti stöðuna hjá læknum líkt og þeir gerðu hjá hjúkrunarfræðingunum.  Annað væri óásættanlegt.





Leita