Skortur á læknum á lyflækningadeild - frétt á RÚV

11.02 2011

Skortur á læknum á lyflækningadeild - frétt á RÚV

Sjá frétt á RÚV

Mikil undirmönnum er á lyflækningasviði Landspítalans og ekki útlit fyrir að það breytist næstu mánuðina, segir Steinn Jónsson sérfræðingur þar. Læknar séu farnir að sýna merki streitu.
Erfiðlega hefur gengið að ráða unglækna til starfa á lyflækningasviði sem er stærsta sviðið á Landspítalanum. Í desember voru fjórar stöður auglýstar en enginn sótti um. Allt síðasta ár vantaði tíu til tólf aðstoðardeildarlækna, segir Steinn Jónsson, sérfræðingur í lungnasjúkdómum við lyflækningadeild Landspítalans.

Það er ekki útlit fyrir að það leysist fyrr en í sumar eða haust, segir Steinn. Hann segir að það muni geysimikið um tíu til tólf lækna. Færri séu á legudeildum þar sem vinnan sé unnin. Þá sé erfitt að koma saman vaktaplani. Það hafi samt sem áður gengið upp en að vísu með mjög auknu vinnuálagi á ungu læknana.

Steinn segir að undirmönnum skýrist af aðhaldsaðgerðum Landspítalans. Í fyrra hafi verið ákveðið að fækka unglæknum.

Steinn segir að slæm reynsla hafi verið af þessu á lyflækningasviði því álagið hafi aukist afar mikið. Í nýlegri starfsmannakönnun á spítalanum hafi komið fram að læknar kvarti undan streitueinkennum.

Steinn segir að margir ungir læknar hafi flutt úr landi þar sem vinnuálag sé minna og laun jafnvel tvöfalt hærri. Ekki náðist í forstjóra Landspítalans nú fyrir fréttir.

frettir@ruv.is

 





Leita