Dómur félagsdóms

10.02 2011

Dómur félagsdóms

Niðurstaða félagsdóms er sú að Landspítala-Háskólasjúkrahúsi hafi verið heimilt að meta það að öllu leyti sjálfstætt hvort stefnandi, læknir á spítalanum, fengi námsleyfi til að sækja málþing svæfingarlækna í Bandaríkjunum.  Niðurstaða dómsins byggir á því að eftirfarandi kjarasamningsákvæði hafi ekki verið brotið:

Kanditat/læknir án sérfræðileyfis sem ráðinn er til 1 árs eða lengur á sömu deild, skal hafa rétt til 7 daga námsferðar fyrir hverja 12 mánuði enda sé námsferðin tengd sérstökum rannsóknar- og vísindaverkefnum sem hann vinnur að og tengist ennfremur starfssviði og verkefnum viðkomandi deildar.  Leita skal umsagnar yfirlæknis viðkomandi deildar áður en leyfi til slíkrar ferðar er veitt.

Um var að ræða umsókn læknisins um að sækja námskeið svæfingalækna í Bandaríkjum dagana 13.-17. mars 2010 og var umsóknin sett fram á grundvelli ofangreinds kjarasamningsákvæðis.  Umsóknin var árituð af yfirlækni en henni var hafnað af framkvæmdastjóra skurðlækningasviðs með vísan til nýrra verklagsreglna framkvæmdastjórnar Landspítala frá því í nóvember 2009.  Samkvæmt þeim verklagsreglum skyldi ferð hafa skýran tilgang í vísindalegu samhengi.  Rannsóknaráætlun skyldi liggja fyrir og vera samþykkt af vísindasiðanefnd eða sambærilegum aðila.  Umsókninni var hafnað á þeim grundvelli að umsækjandi hafi ekki uppfyllt skilyrði kjarasamnings um vísindalegar rannsóknir.  Í forsendum dómsins segir að í umsókn stefnanda hafi komið fram að námskeiðið væri góður undirbúningur fyrir væntanlegt sérnám  hennar en ekki er minnst á þær tvær rannsóknir sem umsækjandi hafði unnið að á svæfingardeildinni.  Dómurinn byggir á því að ekki liggi  fyrir að sá yfirlæknir sem hafði staðfest umsókn stefnanda hefði lagt faglegt mat á umsóknina.  Niðurstaða dómsins er sú að það teljist ekki brot á ákvæði kjarasamnings að settar séu þær reglur af hálfu spítalans að endanleg ákvörðun um námsferðir lækna sé í höndum framkvæmdastjóra viðkomandi sviðs og að yfirlæknar séu umsagnaraðilar þar um.  Á grundvelli þessa segir að ekki verði    fallist á að spítalinn hafi brotið gegn ofangreindu ákvæði kjarasamningsins.

Það er alveg ljóst eftir þennan dóm að verulegur skortur er á leiðbeiningum frá spítalanum.  Hvergi kemur fram á umsóknareyðublaðinu né í verklagsreglum spítalans að gerð sé sú krafa að unglæknir/kandidat vinni einhvers konar vísindastörf á spítalanum.  LÍ finnst heldur ekki rétt að refsa almennum lækni fyrir það að yfirlæknir skrifi ekki umsögn á umsóknareyðublaðið eins verklagsreglur spítalans segja til um.

 

Dóminn má sjá HÉR





Leita