Læknafélag Íslands tekur á ný sæti í WMA

04.02 2011

Læknafélag Íslands tekur á ný sæti í WMA

Úrslit í kosningum til stjórnar Alþjóðasamtaka lækna (WMA - World Medical Association) voru kunngerð í dag. Læknafélag Íslands sóttist eftir sæti í stjórn. Kosið er  póstkosningu á Evrópusvæði WMA og hlutu læknafélög Íslands, Noregs og Hollands kosningu í stjórn. Auk þeirra eiga Bretar, Þjóðverjar, Rússar og Frakkar fulltrúa í stjórninni sem alls telur 24 manns, þar af koma átta frá Evrópu.

 
Kjörtímabilið er tvö ár, en skv. samningi Norðurlandanna um kosningabandalag er líklegt að LÍ muni eiga fulltrúa í tvö kjörtímabil. Á fyrsta stjórnarfundi eftir kosningar skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórnarmenn skiptast í þrjár fastanefndir sem halda fundi tvisvar á ári. Í þessum nefndum eru öll mál samtakanna til umfjöllunar og þar fer mestöll vinna við þau fram. Mál eru síðan afgreidd á aðalfundum WMA sem haldnir eru að hausti. 

 

Jón Snædal verður fulltrúi LÍ í stjórninni, en hann sat í stjórn WMA fyrir læknafélagið á árunum 2001-2005. Jón var kjörinn formaður siðanefndar WMA og gegndi því embætti 2003-2005. Á aðalfundi WMA árið 2006 var Jón svo kjörinn forseti samtakanna starfsárið 2007-2008.

 

 





Leita