Læknalög eru að stofni til frá 1988 en hafa í áranna rás oft tekið breytingum og að jafnaði í góðri samvinnu við lækna. Framkvæmdavaldið hefur ítrekað frá því um aldamót reynt að setja rammalöggjöf um heilbrigðisstarfsmenn og fella læknalög úr gildi.
Lögfræðingar félagsins svara iðulega erindum félagsmanna á þann veg sem gagnast getur fleirum en þeim eina sem bar fram beiðni um úrlausn. Ýmis lögfræðileg álitaefni sem varða félagið í heild fá sömuleiðis skrif frá lögfræðingum sem starfa fyrir LÍ.
Gunnar Ármannsson lögfræðingur var framkvæmdastjóri LÍ 2002-2009, hann skrifaði föstudagsmola sem birtust á heimasíðunni á árunum 2004 til ársloka 2009, fjölmargir þeirra standast vel tímans tönn. Ýmis af þeim dómsmálum sem Gunnar hefur fjallað um og varða lækna hafa fordæmisgildi og varða dagleg störf.