WMA - Alþjóðafélag lækna

World Medical Association (WMA) fæst fyrst og fremst við siðamál lækna, siðareglur í starfi og rannsóknum, mannréttindi en einnig við heilbrigðispólitísk efni. Viðfangefni félagsins eru metin að siðrænum og félagslegum kvörðum, og löggjöf einstakra landa ekki látin bjaga niðurstöðuna ef hún fer í bága við grundvallarreglur siðferðisins. Starfið innan WMA hefur haft áþreifanlega þýðingu fyrir siðferðileg viðmið lækna og víða mótað stefnu löggjafa. Með þátttöku sinni í starfi WMA tekur LÍ meðábyrgð á þeirri grundvallarvinnu, sem þar fer fram.

Ísland átti sæti í stjórn WMA á árunum 2001-2005 og tekur aftur sæti í stjórn á árinu 2011.

Jón Snædal er fulltrúi LÍ í stjórninni.

 

Heimasíða WMA





Leita