Norrænt samstarf

Norræna læknaráðið er samstarfsvettvangur læknafélaga á Norðurlöndum. Fundur Norræna læknaráðsins er haldinn annað hvert ár og er þá skipt um formennsku í ráðinu. Þar hittast fulltrúar úr stjórnum félaganna og starfsmenn. Á fundunum er  fjallað bæði sameiginlega og í starshópum um ýmis málefni sem snerta lækna.  Fundirnir eru haldnir í því landi sem fer með formennsku í hvert skipti.
Stjórnarfundir eru haldnir tvisvar á ári, þar hittast formenn félaganna. Á þeim fundum er farið yfir það sem er helst að gerast í þróun heilbrigðisþjónustu í hverju landi fyrir sig, skipulag heilbrigðismála, kjaramál lækna og samstarf á erlendum vettvangi svo eitthvað se nefnt.

Vinnuhópur læknafélaganna um vinnumarkaðsspár og kröfur til sérfræðimenntunar (SNAPS)  starfar á milli funda Norræna læknaráðsins og kynnir niðurstöður sínar á fundum ráðsins.

Norrænar samninganefndir hittast einu sinni á ári og fara yfir stöðuna í kjarasamningum.

Norrænu siðfræðiráðin hittast á fundi annað hvert ár og fjalla þar um sameiginleg úrlausnarmál.

 

Á árinu 2010 tóku norðmenn við formennsku.

 

Heimasíður norrænu læknafélaganna:

Danska læknafélagið

Finnska læknafélagið

Norska læknafélagið

Sænska læknafélagið





Leita