Enn er runninn upp alþjóðlegur dagur án tóbaks, að þessu sinni með aðaláherslu á markaðssetningu tóbaks til kvenna og mismun á kynjum í tengslum við tóbaksnotkun. Þrátt fyrir lækkandi tíðni reykinga hér á landi, þá er tóbaksnotkun kvenna mjög almenn og að brýnt er að allir sem nota tóbak fái aðstoð við að hætta. Það eru aðgengileg úrræði til þess, vísa má á Reyksímann 8006030 eða á www.reyklaus.is.
Á síðu Lækna gegn tóbaki eru fróðlegar glærur frá fyrirlestrum Dr. Richard Hurt frá Læknadögum 2010 fyrir þau sem ekki hafa kynnt sér þær og enn eru til veggspjöld með umfjöllun um áhrif reykinga á ungt fólk á frjósemisskeiði, sem má fá sent ef óskað er eftir. Veggspjöldin voru hugsuð til að geta haldið umræðu sífellt á lofti um skaðsemi reykinga. Vek athygli á nýjum vef Lýðheilsustöðvar, www.frjals.is sem ætlaður er til að styðja fagfólk vegna ráðgjafar við meðferð á tóbaksfíkn.
Sífellt bætast við úrræði til að styðja þau sem nota tóbak, í glímu sinni við fíknina og er það mikilvægt hlutverk lækna að geta lagt þeim lið og vísað veginn.