Samantekt á læknakostnaði

Þar sem fyrir liggur að skera þarf mjög niður öll útgjöld ríkisins og þar á meðal til heilbrigðismála hefur Læknafélag Íslands tekið saman skýrslu með ýmsum upplýsingum um kostnað við heilbrigðiskerfið.

Kostnaðarupplýsingar og möguleiki á kostnaðarsamanburði er einn lykilþátta þess að unnt sé að taka erfiðar ákvarðanir um niðurskurð. Með góðri kostnaðarvitund er líklegra að ákvarðanir leiði til bestu mögulegrar lausnar þannig að unnt sé að veita eins góða þjónustu og hægt er fyrir það fé sem er til ráðstöfunar. Ríkisstjórn og heilbrigðisyfirvöld verða við núverandi aðstæður að skilgreina þá heilbrigðisþjónustu sem mögulegt verður að veita, með öryggi sjúklinga og starfsfólks að leiðarljósi. Í framhaldi af því verða heilbrigðisyfirvöld að forgangsraða þjónustunni því ekki verður hægt að ná niður svo miklum kostnaði án þess að þjónustan skerðist að einhverju leyti.

 

©Læknafélag Íslands 5.7.2010. 258 skoðanir (68 félagsmenn). Ólæst efni. Óflokkað efni.
Aðeins innskráðir geta vistað athugasemdir
Læknafélag Íslands - Hlíðasmára 8, 200 Kópavogur | Sími: 564-4100 Bréfsími: 564-4106 | Netfang lis@lis.is | Opnunartími skrifstofu 9-16 alla virka daga

Læknafélag Íslands

ForsíðaUpplýsingar