Könnunin var gerð á rafrænan hátt og gátu félagar Læknafélagsins svarað henni tímabilið 29. maí til 14. júní 2009. Tilgangurinn með könnuninni var í fyrsta lagi að ná betri yfirsýn yfir raunverulegan mannafla lækna hér á landi sem og erlendis, þ.e. lækna með íslenskt lækningaleyfi, og í öðru lagi að meta hver aunveruleg laun lækna eru, hvernig þeirra er aflað, hvernig þau skiptast á milli kynjanna og á aldursbil. Læknafélagið stefnir að því að gera kjarakönnun einu sinni á ári.
Læknar á aldrinum 25 til 69 ára með íslenskt lækningaleyfi voru í lok maí 2009 1586 talsins, 68% karlar og 32% konur. Könnunin var send út með tölvupósti til élagsmanna 29.maí og var opin á netinu í 2 vikur eftir það. Því miður eru ekki allir þessir 1586 læknar með skráð netfang og því fór könnunin eingöngu út til um 1.100 lækna. Alls tóku 286 læknar þátt í könnuninni, eða um 18% allra lækna. Þátttaka hefði mátt vera betri og hvetjum við alla til að taka þátt í næstu könnun.