Um vefsíðuna

Davíð Björn Þórisson (í sérnámi) skrifar 25.9.2009

Vefsíða Læknafélagsins er f.o.f. stéttarfélagsvefur fyrir íslenska lækna. Mikið af efnisinnihaldi vefsins fer fram undir lokuðum svæðum sem eru aðeins opin innskráðum félagsmönnum. LÍ birtir á vef sínum fréttatilkynningar þegar svo ber undir. Það skal því tekið fram að lítið sem ekkert er að finna fyrir almenning í upplýsingaleit um sjúkdóma, þar er bent á síður eins og t.d. www.doktor.is

Rit- og vefstjórar

Ritstjórar LÍ bera ábyrgð á efnisinnihaldi síðunnar og halda utan um félagatal:
 Gunnar Ármannsson, Davíð B. Þórisson, Margrét Aðalsteinsdóttir

Ritstjórar taka við fyrirspurnum hvers konar frá almenningi eða fjölmiðlum. Jafnframt starfa sjálfstæðir ritstjórar fyrir hvert undirsvæði, sjá nánar á viðkomandi síðum.

Vefstjóri er tæknilegur umsjónaraðili síðunnar og tekur við ábendingum um villur o.þ.h.: Davíð B. Þórisson

Fyrirspurnir frá almenningi

Öllum er velkomið að senda fyrirspurnir á LÍ, lis(at)lis.is, verður þeim svarað eftir bestu getu. Á fyrstu mánuðum heimasíðu LÍ var boðið upp á opna spjallrás þar sem gestir gátu lagt inn fyrirspurnir til allra lækna en því miður þurfti að loka þeim möguleika vegna misnotkunar.
Þeir læknar sem það leyfa geta tekið á móti fyrirspurnum beint frá almenningu í gegnum heimasíðuna.

Hönnun og forritun

Vefsíðan var hönnuð og forrituð veturinn 2005-6 og keyrir í ASP.net umhverfi með SQL server sem gagnaþjón. Vefurinn er hýstur hjá Vortex á Íslandi. Forritari síðunnar er Davíð B. Þórisson, læknir. Veffyrirtækið 8.is sá um útlitshönnun.

226 skoðanir. Ólæst efni. Óflokkað efni.
Aðeins innskráðir geta vistað athugasemdir
Læknafélag Íslands - Hlíðasmára 8, 200 Kópavogur | Sími: 564-4100 Bréfsími: 564-4106 | Netfang lis@lis.is | Opnunartími skrifstofu 9-16 alla virka daga

Læknafélag Íslands

ForsíðaUpplýsingar