Trúnaðarlækningar

Viðmiðunarreglur Læknafélags Íslands 2009 

Almennt

1.       Trúnaðarlækningar eru læknisstörf sem unnin eru í fyrirtækjum og stofnunum af lækni sem hefur fengið tilskylda viðurkenningu Vinnueftirlits Ríkisins í samræmi við Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (nr. 46/1980).

2.       Trúnaðarlækningar geta verið unnar af öllum læknum sem hafa almennt lækningaleyfi hér á landi og hafa fengið tilskylda viðurkenningu sbr. 1. grein.

3.       Trúnaðarlæknir er ekki heimilislæknir starfsfólks. Hafi trúnaðarlæknir haft starfsmann til meðhöndlunar sem sérfræðingur eða heimilislæknir skal hann ekki sinna erindum hans sem trúnaðarlæknir nema með samþykki viðkomandi starfsmanns.

4.       Trúnaðarlæknir skal gæta þess að hafa samráð við lækni starfsmanns eftir því sem við á.  

5.       Trúnaðarlæknir skal tryggja að starfsmenn séu upplýstir um að hann sé ekki aðeins bundinn starfsmanninum trúnaði heldur hafi einnig skyldur gagnvart fyrirtækinu eða stofnuninni.

6.       Trúnaðarlæknir hefur faglegt sjálfstæði í starfi sínu og er ekki háður fyrirtækinu eða stofnuninni um faglegar ákvarðanir.

7.       Í starfi sínu fer trúnaðarlæknir ávallt eftir ákvæðum siðareglna lækna og læknalaga.

 

Starfssvið

8.       Trúnaðarlæknir veitir vinnuveitanda ráðgjöf varðandi hollustuhætti, forvarnir og læknisfræðileg málefni viðkomandi starfsemi fyrirtækisins.

9.       Trúnaðarlækni er skylt að gæta hagsmuna starfsmanns varðandi allt, sem gæti spillt heilsu hans í starfi. Samráð skal haft við Vinnueftirlit ríkisins, þegar ástæða þykir til.

10.     Trúnaðarlæknir leitist við að leiðbeina starfsmanni er varðar forvarnir, lækningar og endurhæfingar til að viðhalda eða endurheimta starfsgetu starfsmannsins.

11.     Slys og veikindi sem talin eru tengjast starfi skulu tilkynnt Vinnueftirlitinu eins og lög kveða á um.

12.     Trúnaðarlæknir skal eftir því sem við á eiga samstarf við Vinnueftirlitið, vinnuveitanda og starfsmenn um úrbætur vegna starfa sem gætu spillt heilsu starfsfólks.

13.     Trúnaðarlæknir skal gæta þess við starfshæfnisskoðun að ganga ekki lengra en eðlilegt má telja í samræmi við eðli starfsins og sé hann í vafa getur hann leitað til Vinnueftirlitsins eða Læknafélagsins.

14.     Trúnaðarlæknir veitir ráðgjöf varðandi reglubundið heilsueftirlit í samræmi við eðli starfsins og sér til þess að það sé veitt.

15.     Trúnaðarlæknir metur fjarvistir starfsmanna í veikinda- og slysatilfellum og veitir bæði viðkomandi starfsmanni og vinnuveitanda ráðgjöf í samræmi við eðli fjarvista.

16.     Trúnaðarlæknir gefur ekki út læknisvottorð starfsmanna til vinnuveitandans en veitir honum ráðgjöf varðandi fjarvistavottorð sé þess óskað.

17.     Trúnaðarlækni ber ekki skylda til að sinna veikindum eða slysatilfellum, sem upp koma nema í neyðartilvikum.

 

Varðveisla heilsufarsupplýsinga

18.     Heilsufarsupplýsingar sem aflað er innan fyrirtækisins eða stofnunarinnar skulu meðhöndlaðar á sama hátt og aðrar heilsufarsupplýsingar og í samræmi við lög og reglur þar að lútandi.

19.     Aðskilja ber allar upplýsingar sem trúnaðarlæknir hefur aflað sér um starfsfólk frá öðrum heilsufarsupplýsingum þess. Trúnaðarlæknir aflar heilsufarsupplýsinga hjá öðrum heilbrigðisstéttum vegna veikinda og slysa starfsmanna en önnur öflun upplýsinga er óheimil nema með samþykki viðkomandi starfsmanns.

 

Aðgengi og skipulag þjónustunnar

20.     Trúnaðarlæknir útvegar staðgengil í orlofi, lengri námsfríum og veikindaforföllum sé um það samið.

21.     Trúnaðarlæknir semur um fyrirkomulag þjónustunnar svo sem viðveru í húsnæði fyrirtækis eða stofnunar, símatíma, ráðgjöf og aðgengi.

 

©Læknafélag Íslands 25.9.2009. 283 skoðanir (37 félagsmenn). Ólæst efni. Flokkar: Vefsíða LÍ
Aðeins innskráðir geta vistað athugasemdir
Læknafélag Íslands - Hlíðasmára 8, 200 Kópavogur | Sími: 564-4100 Bréfsími: 564-4106 | Netfang lis@lis.is | Opnunartími skrifstofu 9-16 alla virka daga

Læknafélag Íslands

ForsíðaUpplýsingar