Um orlofsvef
Smellið á "Orlofsvefur" í valmynd hér til vinstri til að komast á Orlofsvefinn. Almennum spurningum um notkun Orlofsvefsins verður svarað hér að neðan.

Leiðbeiningar um notkun orlofsvefs
Allir læknar sem hafa greitt ársgjald geta fengið úthlutað úr Orlofssjóð, læknanemar geta ekki sótt um fyrr en eftir útskrift af 6. ári.

Tímabil og úthlutunarreglur
Tvenns konar umsóknartímabil eru notuð.
Orlofstímabil” styðjast við úthlutunarreglur (sjá neðar) og hafa það að markmið að deila orlofsmöguleikum á vinsælustu tímabilunum sem jafnast á félaga. Orlofstímabilin eru þrjú; páskar, sumar og erlendir kostir. Tjaldvagn tilheyrir sumartímabili. Úthlutun á þessum orlofstímabilum fer eftir úthlutunarreglum og er meginreglan sú að sá sem hefur flesta punkta hefur forgang á aðra, ef tveir eða fleiri hafa jafnmarga punkta ræður lífaldur forgangi. Það er því ljóst að margir fá ekki þann orlofsmöguleika sem þeir óska eftir og því er leyft að velja nokkra “kosti” á hverju tímabilinu og raðar umsækjandi kostum í forgangsröð. Við úthlutun ættu því flestir að fá einhverja úthlutun. Athugið að félagsmenn fá aðeins einn möguleika á hverju tímabili. Ef hann/hún er eini umsækjandinn á einhverju tímabili en hefur áður fengið úthlutun (sem er þá í hærri forgang) er umsókn hafnað fyrir tímabil og fer sjálfvirkt á "frjálst tímabil". Fram að úthlutun er hægt að draga umsóknir til baka (í samráði við orlofsstjóra) en eftir úthlutun er það ekki hægt nema af sérstökum ástæðum. Viðkomandi orlofsmöguleiki fer þá á frjálst tímabil og er það svo tilkynnt með tölvupósti þannig að allir geti sótt um.


Öll önnur tímabil tilheyra s.k. “frjálsu tímabili” en ekki er sérstaklega úthlutað í þau heldur gildir sú almenna regla að ‘fyrstur kemur, fyrstur fær’ (þó áfram skilyrði að umsækjandi hafi greitt ársgjald) 1. júlí er hægt að sækja um frjáls tímabil fram að áramótum sama ár en 1. nóvember er hægt að sækja um fram að sumarúthlutun árið eftir. Vegna þessa er mikilvægt að félagsmenn noti vefinn sem mest enda ljóst að þeir sem ekki gera það lendi frekar í því að missa af lausum tímabilum. Einnig er mikilvægt að notendur passi að netföng séu rétt til að tilkynningar um laus tímabil berist sem flestum.

Laus tímabil á "frjálsu tímabili"
Er alltaf hægt að finna frá dagatali á forsíðu eða með því að velja bústað úr valmynd efst uppi. Orlofsstjóri sendir tilkynningu þegar ný tímabil eru vistuð.
 
Úthlutun punkta
Fer fram einu sinni á ári, áður en fyrsta úthlutun á árinu fer fram. Þeir sem hafa greitt ársgjald fá 12 punkta fyrir árið og meðlimir sem hafa náð 70. aldursári fá 70 punkta en ekki eru veittir fleiri punktar eftir það. Læknar erlendis fá ekki punkta.
©Læknafélag Íslands, seinast uppfært 12.8.2008. 1342 skoðanir.Ólæst efni. Óflokkað efni.

Umræður

Alexander Kr. Smárason 26. september 2008 15:56
Góðan daginn.
Hvenær lýkur frjálsu tímabili næsta vor?
Við erum með fermingu um Hvítasunnuna eða þann 30. maí og gætum svo sannarlega notað auka húsnæði.
Kveðja, Alexander Smárason
smarason@simnet.is

Friðbert Jónasson 26. janúar 2009 21:09
Góðan daginn.
Er hægt að forgangsraða umsóknum t.d. ef sótt er um 2 vikur á sama orlofsstað og önnur vikan er til vara?
Kveðja,
Friðbert Jónasson
fridbert@landspitali.is
Anna Geirsdóttir 25. febrúar 2009 12:00
Er ekki pottþétt búið að setja stuðning inn í baðherbergi á Hreðavatni og laga aðkomu að húsi?
Kveðja
Anna Geirsdóttir
Aðeins innskráðir geta vistað athugasemdir
Læknafélag Íslands - Hlíðasmára 8, 200 Kópavogur | Sími: 564-4100 Bréfsími: 564-4106 | Netfang lis@lis.is | Opnunartími skrifstofu 9-16 alla virka daga

Læknafélag Íslands

ForsíðaUpplýsingar