Vinnutími

Með vinnutíma er átt við að læknir sé til staðar, til reiðu fyrir vinnuveitanda og inni af hendi starfskyldur sínar.
Vinnutími telst frá því að læknir mætir á fyrirfram ákveðnum vinnustað og þar til hann yfirgefur hann í samræmi við það vinnufyrirkomulag og skráningu vinnutíma sem forráðamaður viðkomandi stofnunar, eða deildar innan stofnunar, hefur ákveðið.

Vinnuskylda læknis í fullu starfi skal vera 40 klukkustundir á viku. Læknum skal skylt að vinna yfirvinnu og taka vaktir þar sem þess er þörf.  Læknir er þó undanþeginn vaktaskyldu frá 55 ára aldri. 

Heimilt er að semja við einstaka lækna um rýmkun á dagvinnutímabili og ákveðið frjálsræði um hvenær vinnuskyldu ergegnt.

 

Almennir frídagar eru: Laugardagar og sunnudagar.

 

Sérstakir frídagar eru eftirtaldir dagar, enda beri þá ekki upp á laugardaga eða sunnudaga. Laugardagur fyrir páska skal þó engu að síður teljast sérstakur frídagur:

  1. Skírdagur
  2. Laugardagur fyrir páska
  3. Annar í páskum
  4. Sumardagurinn fyrsti
  5. 1. maí
  6. Uppstigningardagur
  7. 2. hvítasunnudagur
  8. Frídagur verslunarmanna
  9. Annar jóladagur

 

Stórhátíðadagar eru:

  1. Nýársdagur
  2. Föstudagurinn langi
  3. Páskadagur
  4. Hvítasunnudagur
  5. 17. júní
  6. Aðfangadagur eftir kl. 12
  7. Jóladagur
  8. Gamlársdagur eftir kl. 12




Leita