Veikindaréttur

Hugtakið veikindaréttur vísar til réttar launamanna til áframhaldandi launa frá atvinnurekanda geti þeir ekki stundað vinnu vegna veikinda eða slysa sem þeir verða fyrir í frítíma sínum.

Samkvæmt kjarasamningi lækna á starfsmaður sem ráðinn er til starfa á mánaðarlaunum í a.m.k 2 mánuði rétt á að halda öllum launum svo lengi sem veikindadagar hans, taldir í almanaksdögum verði ekki fleiri á hverjum 12 mánuðum en hér segir:

 

 STARFSTÍMI     FJÖLDI DAGA

 0 - 3 mánuði í starfi

   14 dagar

Næstu 3 mánuði í starfi   

   35 dagar

Eftir 6 mánuði í starfi

 119 dagar
Eftir 1 ár í starfi  133 dagar
Eftir 7 ár í starfi  175 dagar

 

Við framantalinn rétt bætist auk þess réttur til mánaðarlauna í 13 vikur eða 91 dag ef óvinnufærni stafar af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi.

 

STARFSTÍMI     FJÖLDI DAGA

Eftir 12 ár í starfi

   273 dagar

Eftir 18 ár í starfi   

   360 dagar

 

Í fyrstu viku veikinda- og slysaforfalla eða þann tíma sem svarar til einnar viku vinnuskyldu starfsmanns greiðast auk mánaðarlauna í kjarasamningi, fastar greiðslur svo sem fyrir yfirvinnu, vakta-, gæsluvakta og óþægindaálag og greiðslur fyrir eyður í vinnutíma enda sé um að ræða fyrirfram ákveðinn  innutíma samkvæmt reglubundnum vöktum eða reglubundinni vinnu starfsmanns sem staðið hefur í 12 almanaksmánuði eða lengur eða er ætlað að standa a.m.k. svo lengi.

 

Eftir fyrstu viku veikinda- og slysaforfalla eða þann tíma sem svarar til einnar viku vinnuskyldu starfsmanns, skal hann auk launa sem greidd verða skv. ofangreindri málsgrein, fá greitt meðaltal þeirra yfirvinnustunda sem hann fékk greiddar síðustu 12 mánaðarleg uppgjörstímabil yfirvinnu eða síðustu 12 heilu almanaksmánuðina. Við útreikning yfirvinnustunda samkvæmt þessari grein skal ekki telja með þær yfirvinnustundir sem greiddar hafa verið skv. ofangreindri málsgrein.

 

Réttur eftirlaunaþega í tímavinnu, eða annars konar vinnu, til launa vegna óvinnufærni af völdum veikinda eða slysa er 1 mánuður á hverjum 12 mánuðum. Laun í veikindum skal miða við meðaltal dagvinnulauna síðustu 3 mánuði fyrir veikindi.

 

Laun greidast aldrei lengur en ráðningu er ætlad ad standa.





Leita