Uppsögn

Ráðningarsamningur skal vera uppsegjanlegur af beggja hálfu með eins mánaðar fyrirvara á reynslutíma sem er  fyrstu þrír mánuðir ráðningar, nema annað sé tekið fram í ráðningarsamningi. Að því loknu skal ráðningarsamningur vera uppsegjanlegur af beggja hálfu með þriggja mánaða fyrirvara, miðað við mánaðamót.

 

Sé lækni sagt upp, eftir a.m.k. 10 ára samfellt starf hjá sömu stofnun, er uppsagnarfrestur 4 mánuðir ef hann er orðinn 55 ára, 5 mánuðir ef hann er orðinn 60 ára og 6 mánuðir þegar hann er orðinn 63 ára. Læknir getur hins vegar sagt upp starfi sínu með þriggja mánaða fyrirvara.





Leita