Orlofsréttur

Læknir fær 10,17% orlofsfé á dagvinnutímakaup og yfirvinnu- og álagsgreiðslur skv. kjarasamningi lækna.
Við 30 ára aldur fær hann 11,59%. Við 38 ára aldur fær hann 13,04%. Með starfsaldri skv. þessari
grein er átt við starfstíma miðað við fullt starf í þjónustu vinnuveitanda samfellt í 3 mánuði eða lengur.

 

Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.

 

Orlof veitt á sumarorlofstíma
Læknir á rétt á að fá 160 vinnuskyldustunda orlof sitt á sumarorlofstímabilinu og allt að fullu orlofi á sama tíma, verði því við komið vegna starfa stofnunarinnar. Sé orlof eða hluti orlofs tekið utan sumarorlofstímabils að beiðni yfirmanns, skal sá hluti orlofsins lengjast um 1/4.

 

Ákvörðun orlofs
Yfirmaður ákveður í samráði við lækna hvenær orlof skuli veitt. Honum er skylt að verða við óskum lækna um hvenær orlof skuli veitt og skal það veitt á sumarorlofstíma, sé þess óskað af hálfu læknis og því verður við komið vegna starfa stofnunarinnar. Yfirmaður skal, að lokinni könnun á vilja lækna, tilkynna svo fljótt sem unnt er og í síðasta lagi mánuði fyrir byrjun orlofs hvenær orlof skuli hefjast nema sérstakar ástæður hamli.

 

Veikindi í orlofi
Veikist læknir í orlofi, telst sá tími sem veikindum nemur, ekki til orlofs enda sanni læknir með læknisvottorði að hann geti ekki notið orlofs.

 

Frestun orlofs
Ef læknir tekur ekki orlof eitthvert ár á hann þá rétt á, með samþykki yfirmanns, að leggja saman orlof þess árs og hins næsta til orlofstöku síðara árið.
Ef læknir tekur ekki orlof eða hluta af orlofi skv. beiðni yfirmanns síns,  geymist þá orlofið til næsta árs ella ber honum þá yfirvinnukaup fyrir starf sitt þann tíma.  Annars er læknum óheimilt að taka vinnu í stað orlofs í
starfsgrein sinni.

 





Leita